veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni kærlega fyrir fyrirspurnina og ég veit að hann veit alveg hvers son ég er þannig að ég tek það ekkert persónulega. Hv. þingmaður nefnir hér það að fá sem mest fyrir arðinn og með samþjöppunina innan greinarinnar. Mig langar að vekja athygli á því í fyrsta lagi að ástæðan fyrir því að við erum að tala um blómlegar byggðir og þó samt aukið gjald fyrir rentuna er einmitt til þess að geta líka eflt samfélögin, ekki bara samfélögin þar sem sjávarútvegurinn er heldur líka samfélögin í kring og minni samfélög sem ekki hafa notið þess sem núverandi samfélög njóta, þ.e. í gegnum útgerðirnar. Og einmitt vegna þess að samþjöppunin hefur ekki átt sér stað núna og ég veit ekki hvort hún mun verða, það verður að koma í ljós, við stýrum því ekki — samþjöppun hefur svo sannarlega verið í þessari grein. Það er ekki vegna þess að við erum að leggja veiðigjald á núna eða vegna þess að veiðigjaldið var lagt á heldur vegna þess að útgerðin leitar eðlilega að hagræðingu í sínum rekstri og hefur þess vegna verið að þjappa sér saman. En við erum að ræða það hér að útgerðin skili til baka réttu eða eðlilegu afgjaldi svo að við getum eflt byggðir landsins. Það er aðalröksemdin mín í þessu máli.