156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:16]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þarna sker á milli vinstri manna og hægri manna. Vinstri maðurinn vill skatta atvinnulífið nógu hátt þannig að hann geti farið ríðandi á hvítum hesti heim í hérað og dreift út peningum meðan við trúum því að öflugt atvinnulíf sé forsenda þess að halda uppi byggðum allt í kringum landið, og það hefur svo sannarlega verið reyndin.

En mig langaði að spyrja hv. þm. Eirík Björn Björgvinsson, virðulegur forseti, af því að hann talar um einkarekin fyrirtæki í litlum sveitarfélögum, að það sé vont þegar til staðar er mikið vald viðkomandi fyrirtækis. Ég velti því fyrir mér: Nú erum við með sveitarfélög þar sem álver eru stór eða jafnvel fjórðunga eins og Austfirði og Húsavík og Hvalfjarðarsveit og fleiri staði þar sem eru stórir vinnustaðir t.d. í stóriðju. Við getum tekið fleiri svona dæmi í ferðaþjónustu og annað. Ég náði ekki alveg hvert hv. þm. Eiríkur Björn Björgvinsson var að fara í máli sínu. Er hv. þingmaður að tala fyrir því að við eigum bara að vera hér með bæjarútgerðir og stóriðju í eigu ríkisins og að ferðaþjónustan eigi að vera í eigu ríkisins? Eða bara að einingarnar séu nógu litlar þannig að þær muni ekki hafa áhrif á sveitarsjóð ef þær muni loka? Ég náði því ekki alveg hvert hv. þingmaður var að fara í ræðu sinni hér áðan.