156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:18]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir seinna andsvarið. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er kallaður vinstri maður og ég tek það svo sem ekkert óstinnt upp. (Gripið fram í.) Talandi um það að ég sé vinstri maður tali ég fyrir því að hækka gjaldið á stærri fyrirtæki, minnka þau, til að ná afgjaldinu til samfélagsins — við erum einfaldlega með þetta skattkerfi í dag að við tökum gjald af fyrirtækjum, m.a. til að efla samfélagið sem við erum að vinna í. Hv. þingmaður þekkir það bara ágætlega. Ég vek athygli hans á því að í vinstri stjórn hér á síðasta kjörtímabili var skattheimta líka aukin, m.a. á skemmtiferðaskip, það var lagt á kolefnisgjald o.s.frv. Talandi um að við séum hér bara að tala um að hækka skatta þá vil ég benda á að það hefur líka verið gert af ríkisstjórn — sem hann var reyndar ekki í en hann er nú varaformaður í flokki sem þar var við völd. Ég vek athygli á því. Hann kom aðeins inn á álverin og stórfyrirtæki — við vitum alveg að þegar við erum að bera saman álver og fiskveiði þá erum við að tala um fiskinn í sjónum sem er eign þjóðarinnar. Það er það sem við erum að tala um. Við erum að reyna að taka gjald sem við teljum vera sanngjarnt til þess að við getum sem þjóð fengið að nýta það til uppbyggingar fyrir allt samfélagið. Það er bara sá punktur sem ég er með í minni ræðu og sú áhersla sem ég legg í þessum málum.