156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:20]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir ágæta ræðu, ekki fyrir allt samt, þetta var misgott, ekki gott með vinstri manninn. En Hvítár-Hvítár svæðið; við ræðum þetta mikið varðandi landsbyggðarskatta og annað. Þær greiningar sem ég hef verið að kalla eftir í dag eru einmitt til að sjá hvernig þetta fellur á byggðir landsins og landsfjórðunga. Ég held að það gæti verið áhugavert að skoða það. Við þekkjum það að fyrir utan þetta svæði, Hvítá til Hvítár, búa um 15% þjóðarinnar. Ég hugsa að það sem fellur til í veiðigjöldum, til að skjóta á eitthvað, gæti verið 75–80%, það sem fellur til þeirra byggða sem standa fyrir utan Hvítár-Hvítár svæðið. Það er þess vegna sem við tölum um þessi mál þegar við erum að tvöfalda veiðigjöld, það er verið að tvöfalda skatta í þessu formi þannig að það sé alveg á hreinu.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki sama skilning á þessu. Er ekki réttast að skoða þetta út frá því hvar fólkið býr og út frá mannfjölda og annað? Það hlýtur alltaf að vera það sem við erum að skoða þegar verið er að athuga með afkomu fólks og hvaða áhrif þetta hefur inn á mismunandi svæði.

Það hefur líka komið fram í þessari umræðu, reyndar mun minna í dag en var fyrir mánaðamótin mars/apríl, að það er þessi áhersla á innviði, að það ætti að byggja upp vegi landsins með þessum veiðigjöldum. Það hefur reyndar farið mjög lítið fyrir því í dag, finnst mér, enda benti ég á það um mánaðamótin mars/apríl að í lögum um opinber fjármál, sem voru samþykkt hér í þinginu í desember 2015, má ekki marka tekjustofna til ákveðinna verkefna. Það er ekki verið að fara eðlilega að í umræðu að tala um hlutina með þessum hætti.