156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:23]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni kærlega fyrir andsvarið. Varðandi vangaveltur hans um skilgreininguna á höfuðborgarsvæði og landsbyggð — hann talar um Hvítár-Hvítár svæðið, ef ég hef skilið spurninguna rétt, og spyr um afstöðu mína til þess — þá geri ég ekki ágreining í því, ég held að það sé skilgreining Byggðastofnunar hvað telst vera höfuðborgarsvæði og hvað telst vera landsbyggð. Hv. þingmaður veltir fyrir sér skattheimtu utan þess svæðis og innan þess og þá vek ég athygli hv. þingmanns á því, eins og ég nefndi aðeins í ræðu minni, að tekjur þó nokkurra af þessum fyrirtækjum eru einmitt að skila sér inn á þetta svæði, Hvítár-Hvítár svæðið. Við erum að tala um landsbyggðarskatt en það var tilgangur minn með því að vekja athygli á þessu að við getum bara ekki kallað þetta landsbyggðarskatt vegna þess að þetta er auðvitað skattur sem skilar sér inn á fleiri svæði en þau sem eru utan við Hvítár-Hvítár svæðið.

Varðandi fyrirspurn hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar um uppbyggingu á vegum þá kannast ég ekki við að ég hafi nefnt einhverjar sérstakar aðgerðir. Ég talaði reyndar um það í ræðu minni að nýta tekjur til uppbyggingar innviða. Mér finnst það ekkert óeðlilegt, það er síðan alveg rétt hjá hv. þingmanni að við erum ekki með afmarkaða tekjustofna til sérstakra verkefna, því að allir skattar sem skila sér inn til ríkisins eru nýttir til samfélagsins í heild sinni. Vegakerfið er bara hluti af því, ekki síst vegna þess að sjávarútvegurinn notar líka vegina, m.a. með miklum þungaflutningum.