156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:25]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það væri kannski eðlilegast að tala aðeins um þær skatttekjur sem verða til á landsbyggðinni. Þóroddur Bjarnason, félagsfræðingur og prófessor, gerði fyrir einhverjum árum rannsóknir og fleiri hafa gert það, líka Vífill Karlsson hagfræðingur, og það eru 2 til 3 kr. sem fara suður til Reykjavíkur en 1 kr. sem fer til baka. Það væri kannski eðlilegra að taka meira af þeirri verðmætasköpun sem verður til á landsbyggðinni og skila því í meiri mæli til baka. Þegar málið var sett fram á sínum tíma var lögð svo mikil áhersla á þetta, helsti áherslupunkturinn var að þetta ætti að fara í innviði á landsbyggðinni, það sem kæmi inn í gegnum veiðigjöld, þær skatttekjur sem verða til þar. Það er mikilvægt að halda þessu til haga í umræðunni. Það er óþarfi að vera að plata almenning í landinu með þessum hætti.

Mig langar að spyrja hv. þm. Eirík Björn Björgvinsson: Það hefur kannski verið lítil umræða hér í dag um þær tækniframfarir sem hafa orðið í sjávarútveginum. Fyrir einhverjum árum, þegar sá sem hér stendur var aðeins að skoða þá hluti sem tengdust því, höfðu ótrúlega hraðar breytingar orðið. Í kringum 1990 voru það um 10 kíló sem fóru í gegnum starfsmann í fiskvinnslunni sem er væntanlega komið, í mestu og öflugustu vinnslutækni, þar sem fjórða iðnbyltingin hefur tekið yfir, upp í einhver 170 eða 180 kíló á hvern starfsmann í fiskvinnslu. Það er þessi breyting sem er í verðmætasköpuninni og í gegnum fjárfestingarnar sem hefur náttúrlega líka skapað ákveðin vandamál því að það er erfitt að vera með fulla vinnslu í öllum þorpum og bæjum í landinu. Þurfum við ekki aðeins að efla þessa umræðu þegar við ræðum málið í atvinnuveganefnd þar sem við hv. þingmaður sitjum báðir? Verðum við ekki að reyna að átta okkur aðeins á þessari stöðu og gera þetta að aðeins heilsteyptari umræðu?