156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:27]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni kærlega fyrir seinna andsvarið. Fyrst varðandi byggðaaðgerðirnar: Það kom fram í minni ræðu að það sé mjög mikilvægt að þetta skili sér til nærsamfélagsins. Við höfum ýmsar leiðir til þess þó að gjaldið renni beint í ríkissjóð. Það er okkar verkefni að tryggja að það sé stuðningur við þessi byggðarlög, m.a. þaðan sem tekjurnar koma. En við megum ekki missa fókusinn á því sem er aðalatriðið hérna, þ.e. að fiskurinn er eign þjóðarinnar allrar, sama hvar við búum.

Varðandi tækniframfarirnar þá er það alveg rétt sem kemur fram hjá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni, þ.e. að sjávarútvegurinn hefur tæknivætt sig mjög mikið, ekki síst síðustu ár. En við megum ekki gleyma því að mörg þessara fyrirtækja hafa einmitt notið ríkisstuðnings þegar þau hafa verið að koma sér í gang og koma sér af stað, fyrir utan það að við höldum úti mjög öflugu skólakerfi líka þaðan sem margt af þessu fólki sem er í þessum tæknigeira kemur. Við megum ekki gleyma því að það er ekki þannig að þetta gerist allt saman af sjálfu sér. Við þurfum að geta hjálpast að við það einmitt að efla tækniframfarir í þessum geira sem og annars staðar. Við erum stolt af því að við stöndum framarlega á því sviði og ég er einn af þeim sem er mjög stoltur af því.