156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:30]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald. Þetta er stór og mikilvæg umræða sem ég tel mikilvægt að þroskist vel á næstu vikum og verði heilsteypt umræða, ekki síst í meðförum atvinnuveganefndar. Að mörgu leyti fallast manni svolítið hendur þegar verið að ræða þessi mál og viðhorf gagnvart þessari atvinnugrein og gagnvart landsbyggðinni, en sjávarútvegurinn er á mjög stórum svæðum gríðarlega mikilvægur atvinnuvegur. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ákveðið að setja skýran punkt aftan við stefnu sína gagnvart landsbyggðinni því nú er ljóst að sú stefna felst í því að tvöfalda veiðigjöld. Það er harkaleg aðgerð sem erfitt er að túlka öðruvísi en sem hreina árás á sjávarbyggðir Íslands. Þegar ríkisstjórn tekur ákvörðun um að hækka álögur á lykilatvinnugrein landsbyggðarinnar með þessum hætti þá hefur hún tekið ákvörðun um að skerða möguleika fólks til lífsviðurværis á landsbyggðinni. Hún leggur á landsbyggðarskatt hér, landsbyggðarskatt þar og landsbyggðarskatt alls staðar.

Í þessu samhengi vil ég líka ræða innviðagjöld sem við tökum örugglega síðar varðandi skemmtiferðaskip og slíka hluti, það er hluti af þessu. Þó að hér hafi verið samþykkt í haust innviðagjöld á skemmtiferðaskip þá telur sá sem hér stendur, svo það sé ljóst, hafa verið mjög illa staðið að því og þurfi að lagfæra, það hafi mjög skaðleg áhrif á landsbyggðina.

Þegar drögin að því frumvarpi sem við ræðum hér voru kynnt til umsagnar í samráðsgátt um mánaðamótin mars/apríl fengu sveitarfélögin aðeins nokkra daga til að bregðast við þessum alvarlegu tíðindum. Engin greining lá fyrir um áhrif frumvarpsins á fjárhag þeirra, engir útreikningar á mögulegum afleiðingum fyrir atvinnulíf og það sem meira var, engin raunveruleg viðleitni var sýnd til að eiga samtal við fólkið sem mun bera afleiðingar þessarar ákvörðunar. Við munum að umsagnarfresturinn í samráðsgátt var mjög stuttur fyrir jafn stórt og mikið mál, enda var kvartað mjög yfir því, m.a. af sveitarfélögum vítt og breitt. Hæstv. fjármálaráðherra gerði síðan lítið úr mikilvægi þessa samráðs þegar hann fullyrti í útvarpsviðtali að umsagnir sveitarfélaganna skiptu engu máli. Nei, sagði hann og með því lýsti hann afstöðu ríkisstjórnarinnar gagnvart landsbyggðunum skýrar en hægt er að orða það í nokkrum frumvarpstexta.

Virðulegi forseti. Sjávarútvegur er ekki atvinnuvegur í tómarúmi. Í sjávarbyggðum þessa lands er sjávarútveginn víðast hvar sjálf undirstaða samfélagsins, stoð og stytta þessa fólks sem kýs að byggja líf sitt í þessum byggðum. Hver einasta króna sem greidd er í veiðigjald kemur frá fyrirtækjum sem eru burðarásar í þessum samfélögum, fyrirtækjum sem standa fyrir atvinnu, innviðauppbyggingu og fjárfestingum. Það er ljóst að þessi skattahækkun mun ekki aðeins skerða afkomu þessara fyrirtækja heldur einnig draga úr fjárfestingum og skapa hvata til að flytja fiskinn óunninn úr landi. Með slíku tapast ekki aðeins bein verðmæti heldur einnig þekking og tækifæri til nýsköpunar sem sjávarbyggðirnar hafa verið vagga fyrir.

Virðulegi forseti. Við skulum setja þetta í samhengi við raunveruleikann. Útreikningar t.d. Síldarvinnslunnar sýna að í einu sveitarfélagi, Fjarðabyggð, gæti hækkun veiðigjalda þýtt aukinn kostnað upp á 3 milljarða kr. á ári. Þetta er ekki aðeins aukinn kostnaður heldur fjármagn sem ella gæti farið í launagreiðslur, í fjárfestingar í nýjum tækjabúnaði, í nýsköpun og þróun og atvinnuuppbyggingu. Hér er því um raunverulegan landsbyggðarskatt að ræða, skatt sem ríkið leggur sérstaklega á þau samfélög sem byggja á sjávarútvegi. Þá eru eftir afleiddu áhrifin á þau fyrirtæki og verktaka sem byggja lifibrauð sitt að upplagi á að þjónusta sjávarútveginn í sínum bæjarfélögum.

Virðulegur forseti. Það er einhvers konar firra að halda það að sú hækkun sem hér er til umræðu muni einvörðungu bitna á breiðu bökum þessara samfélaga. Hún mun skerða lífsgæði okkar allra með einum eða öðrum hætti. Sveitarfélög um allt land standa nú frammi fyrir þeirri staðreynd að tekjur þeirra munu minnka, atvinna dragast saman og íbúar þurfa að horfa upp á verri lífsgæði og lakari þjónustu vegna þessarar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar. Þessu til viðbótar benda greiningar á að ef frumvarpið nær fram að ganga muni það rýra verðmæti stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins um tugi milljarða króna. Þetta eru verðmæti sem tapast úr íslensku byggðum, tap sem engin ríkisstjórn ætti að vilja bera ábyrgð á.

Ég hef áður talað í þessari pontu um mikilvægi nýsköpunar sem sprottið hefur úr fiskvinnslu og sjávarútvegi á Íslandi. Um 56% gildra einkaleyfa hér á landi tengjast einmitt þessari grein. Fyrirtæki á borð við Marel, Vélfag, Curio, Kerecis og KAPP hafa öll orðið til vegna þekkingar og nýsköpunar í íslenskum sjávarútvegi. Með þeirri skattheimtu sem nú er fyrirhuguð verða forsendur slíkrar nýsköpunar óhjákvæmilega veikari. Það mun koma niður á getu okkar til að halda áfram að skapa ný tækifæri, nýjar stoðir í íslensku efnahagslífi. Þegar ríkið meðvitað skapar skattumhverfi sem dregur úr samkeppnishæfni atvinnugreinar og ýtir undir að hráefnið sé flutt úr landi ber það ábyrgð á þeim afleiðingum. Hvað mun verða um þau fyrirtæki sem gætu orðið næsta Marel eða næsta Kerecis þegar nú á að svipta burt þeim grunni sem þau fyrirtæki hafa orðið til á? Munu þau þá spretta upp annars staðar í Evrópu eða annars staðar í heiminum í stað þess að skapa verðmæti hér á landi?

Virðulegi forseti. Í þessu ljósi verður að spyrja hvort hæstv. ríkisstjórn hafi gert sér grein fyrir afleiðingum þessarar skattahækkunar áður en hún ákvað að hartnær tvöfalda álögurnar á sjávarútveginn, tvöfalda veiðigjaldið. Ríkisstjórnin hefur ekki gert slíkt áhrifamat. Hún er einfaldlega að leika sér að lífsafkomu fjölmargra íslenskra byggðarlaga.

Þá er einnig vert að nefna hér hversu veikum grunni þessi ákvörðun er reist á. Ríkisstjórnin hefur valið að miða gjöldin við norskt uppboðsverð á uppsjávarfiski, uppsjávartegundum, sem byggt er á allt öðrum forsendum og aðstæðum en þeim íslensku. Sérfræðingar sem ríkisstjórnin sjálf réð til að meta þessa aðferð vöruðu eindregið við henni, bentu á skekkjur og þá staðreynd að norska verðmyndunin væri jaðarverð sem gæfi enga raunhæfa mynd af heildarverði fisks hér á landi. Samt sem áður er haldið áfram með þessa veiku órökstuddu grunnforsendu sem mun valda íslenskum byggðum óafturkræfu tjóni, gott ef ekki mun koma í ljós að hún stríði meira að segja gegn stjórnarskrá.

En, virðulegi forseti, þetta mál verður enn alvarlegra. Í ljósi ytri aðstæðna. Í dag stendur íslenskur útflutningsiðnaður frammi fyrir verulegum áskorunum vegna tollastríðs og nýrra viðskiptahindrana, einkum og mögulega í viðskiptum við Evrópusambandið, eftir því hvernig þetta allt saman fer, og síðan auðvitað Bandaríkin. Það er alvarleg staða uppi. Umræðan um tollkvóta, hertar reglur um upprunavottorð og auknar kröfur um sjálfbærnivottanir eru allt saman hluti af þeim þrýstingi sem fyrirtæki í útflutningi standa frammi fyrir og þá eru blikur aftur komnar á loft í íslensku hagkerfi. Það ætti því að vera sjálfsagt að við styðjum við greinarnar sem skapa útflutningstekjur, ekki setja á þær auknar byrðar. Þvert á móti ættum við að tryggja sjávarútveginum að hann geti brugðist við þessum áskorunum með sveigjanleika, fjárfestingum í tækni og nýsköpun og að við verjum samkeppnishæfni hans.

Með þessu frumvarpi gerist hið gagnstæða. Við aukum álögur og þrengjum að þeirri grein sem skilar milljörðum í útflutningstekjur, í kringum 20% af útflutningstekjum þjóðarinnar undanfarin ár, stendur fyrir um 8–9% af landsframleiðslu síðustu árin og veitir umtalsverðan fjölda starfa á landsbyggðinni og heldur byggð í landinu. Þetta er í rauninni eini sjávarútvegurinn í heiminum sem getur státað af slíku, að halda uppi byggð með þeim hætti sem hann gerir á sjálfbæran hátt. Í því ljósi er ekki aðeins óskynsamlegt heldur afleitt að samþykkja þetta illa unna frumvarp og, leyfi ég mér að segja, vanhugsaða frumvarp. Við þurfum að huga að því að tryggja að íslenskur sjávarútvegur standi stöðugur þegar ytri aðstæður eru óstöðugar. Við eigum ekki að skapa innri óstöðugleika með svona óvönduðu frumvarpi.

Virðulegi forseti. Þetta er ekki spurning um að stór útgerðarfyrirtæki greiði sanngjörn gjöld. Þetta snýst um að halda byggðum landsins gangandi. Þetta snýst um að standa vörð um fjárfestingar og nýsköpun í sjávarútvegi sem skapar störf og verðmæti um allt land. Þetta snýst um að verja hagvöxt. Þetta snýst um hvort ríkisstjórnin kýs að skapa fólki á landsbyggðinni trausta framtíð eða hvort hún kýs að kippa undan því fótunum með óábyrgri skattlagningu. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn eindregið til þess að endurskoða þessa ákvörðun, stíga skref til baka og tryggja að ferlið verði unnið á grundvelli gagnsæis, sanngirni og með raunverulegu samráði við þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta. Við skuldum landsbyggðinni ekkert minna.

Síðan er ég með nokkra punkta almennt í þessari umræðu hérna í dag. Þetta er sú atvinnugrein á heimsvísu þar sem við njótum og höfum búið okkur til samkeppnishæfni umfram aðrar þjóðir. Við höfum búið okkur til þekkingu umfram aðrar þjóðir fyrst og fremst í þessu. Ég kom inn á það áðan að 56% allra einkaleyfa á Íslandi tengjast sjávarútvegi. Það er ótrúleg staða. Marel var stofnað í Háskóla Íslands 1983, fyrir rúmum 40 árum, og sagan af þeirri þróun sem hefur orðið í gegnum þann iðnað sem tengist sjávarútveginum er ótrúleg. Það er hliðarsaga en hún byggist á þeirri öflugu atvinnugrein sem sjávarútvegurinn er. Þetta er þessi fjórða iðnbylting sem við sjáum verða til þar. Þetta er hluti af þessari fjórðu stoð sem við erum alltaf að tala um varðandi uppbyggingu hér á landi.

Það er von mín að í atvinnuveganefnd verði tekið á þessu og það komi betri greiningar sem snúa að efnahagsumhverfinu og almennt stöðu þeirra byggða og svæða sem þetta mun hafa mest áhrif á. Það hefur komið fram í umræðunni að það eru einungis 15% þjóðarinnar sem búa utan Hvítá-Hvítársvæðisins. Það er raunverulega á þeim hópi Íslendinga sem þetta mun bitna mest á, á þeim samfélögum. Ég efast um að fólkið í Vesturbænum verði fyrir miklum skaða frá degi til dags en þeir sem búa í meiri tengslum við atvinnugreinina munu finna fyrir þessu. Það er lygilegt hvað það er mikil þjónusta og mikill þjónustuiðnaður í kringum sjávarútveginn og áhrifin eru gríðarleg líka í stærra samhengi. Við þekkjum það bara eins og t.d. á Suðurnesjum varðandi Keflavíkurflugvöll og útflutning á ferskum fiski og alla þá starfsemi sem hefur orðið til út af því að vera með þennan öfluga sjávarútveg, geta flutt út ferskan fisk alla daga ársins og fyllt upp í samninga alla daga ársins. Það er kannski stærsti munurinn þegar við erum að ræða um íslenskan sjávarútveg miðað við norska sjávarútveginn sem við höfum rætt svolítið um, sem fyrst og fremst er að veiða í janúar, febrúar, mars, apríl. Þar er ekki sama geta til að afhenda fisk alla daga ársins, 365 daga ársins. Ég reikna með að við fáum í hv. atvinnuveganefnd kannski frekari greiningar á því en þar er mikið flutt af óunnum fiski til Póllands og Kína og aftur flutt á aðra markaði vegna þess að Norðmenn hafa ekki náð þeirri hagkvæmni í sínum rekstri og verðmætasköpun í sjávarútvegi að geta unnið aflann með þeim hætti sem við gerum hér. Það er hættan í þessu máli. Við þurfum að tryggja að svo geti orðið áfram hér á landi. Ég held að það sé mjög mikilvægt atriði í þessu. Síðan hefur auðvitað náðst mikill árangur líka í vinnslu til manneldis í uppsjávarveiðinni á undanförnum árum og það hafa orðið gríðarlegar fjárfestingar í skipum og landvinnslu sem tengist uppsjávarfiski. — Ég hef lokið máli mínu, forseti.