156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:45]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta framsögu og ágæta yfirferð um mikilvægi sjávarútvegs fyrir íslenskt samfélag og byggðir landsins. En ég saknaði hins vegar eilítið hófstilltari og staðreyndamiðari tengingar við frumvarpið sem við ræðum hér nú. Ég nefni sem dæmi yfirlýsingar um að þessi leiðrétting muni rýra verðmæti sjávarútvegsfyrirtækja um tugi milljarða — ég hef áhuga á að heyra hvaðan hv. þingmaður fær þá tölu. Ég vil þá kannski benda góðfúslega á það í leiðinni að hækkun veiðigjalds, eins og fram kemur í frumvarpinu fyrir árið 2026, úr ríflega 11 milljörðum í 17 milljarða er ekki 100% hækkun heldur rúmlega 50% hækkun. Það er kannski einhver slík reikningsvilla fólgin í þessari meintu rýrnun á verðmæti sjávarútvegsfyrirtækja. En ég er að tilgreina þetta hér vegna þess að ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að það er mikilvægt að byggja þessa umræðu á staðreyndum.

Varðandi neikvæð áhrif á rannsóknir og þróun og mikilvæga nýsköpun hef ég líka áhuga á að heyra í hv. þingmanni af því að nú er það vel þekkt í hagfræðinni að auðlindarenta almennt — og ég ætla að vona að við séum ekki að deila um það að hér séum við að tala um auðlindarentu, hún er einfaldlega sá umframhagnaður sem myndast í atvinnugrein sem nýtir takmarkaða og eftirsótta auðlind líkt og sjávarútvegurinn okkar gerir — hefur ekki áhrif, og skattlagning hennar, á ákvarðanir fyrirtækja um rekstur og annað slíkt sem byggt er á viðskiptalegum forsendum. Það er fjárfesting í nýsköpun og þróun sannarlega, enda er það óumdeilt að þar hefur verðmætasköpun í sjávarútvegi einna fyrst verið undanfarið. Mér leikur einfaldlega forvitni á að vita af hverju sjávarútvegsfyrirtækin ættu að bregðast við þessari hófstilltu leiðréttingu með því að draga úr eigin verðmætasköpun.