156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:48]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra málaflokksins fyrir andsvarið. Varðandi milljarðatugina þá er hér bara verið að benda á úttekt Jakobsson Capital, sem var unnin af hálfu þess fyrirtækis, þar sem kemur fram að verðmæti þriggja stærstu sjávarútvegsfélaganna lækkar um samtals 53 milljarða á verðbréfamarkaði eða um 13%. Það er þannig, og ég man það bara út af öðru máli sem við erum að fást við í alþjóðanefnd, að lífeyrissjóðirnir, og þar með almenningur, eiga um 40% í Brim, 24% í Síldarvinnslunni og 10% í Ísfélaginu. Þaðan kemur talan sem við erum að tala um, það er verið að lækka verðmæti fyrirtækja, bara þessara þriggja, og það er metið á 53 milljarða. Það eru því nokkrir tugir milljarða þar.

Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér umræðunni og hve mikil áherslan á auðlindarentuna hefur verið í þessu máli og það er verið að benda á Noreg í því dæmi. Það má vera að maður taki þá hugsun aðeins lengra í atvinnuveganefnd. Það er frábært að auðlindarenta skapast á Íslandi, það hefur ekki tekist í Noregi. Samt erum við að fara með forsendur í þessu máli, varðandi uppsjávarveiðarnar, og taka dæmin frá landi þar sem auðlindarenta myndast ekki. Ég vona að þingmenn átti sig á samhengi hlutanna en þetta er dæmi sem ég hefði áhuga á að taka svolítið lengra vegna þess að öll þessi umræða hefur miðast svolítið mikið við auðlindarentu og að miða uppsjávarveiðina við Noreg þar sem auðlindarenta myndast ekki. Er ekki eitthvað bogið í þeirri nálgun?