156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:50]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt, það hefur ekki myndast auðlindarenta í Noregi vegna þess að stjórnvöld hafa ekki búið svo um hnútana að atvinnugreinin hafi svigrúm til þess. Þar hefur verið litið á sjávarútveginn, sem hefur hlutfallslega miklu minna vægi í norsku atvinnulífi eins og við vitum, út frá byggðastefnu. Byggðastefnusjónarmið hafa orðið ofan á þar. Ekki hefur verið farið í þær umfangsmiklu lagabreytingar sem hér hefur verið farið í á undanförnum áratugum sem hafa skapað grunn fyrir þessa auðlindarentu. Með öðrum orðum þá er það ekki þannig að það hafi ekki tekist heldur hefur verið tekin meðvituð ákvörðun um að gera það ekki með tilheyrandi fórnarkostnaði fyrir viðkomandi samfélag eins og við þekkjum hér. Og þeir sem tala hér um fórnarkostnað byggðarlaga landsins ættu manna helst að þekkja þann kostnað sem byggðarlögin hafa borið, akkúrat vegna þess að stjórnvöld tóku þá ákvörðun að búa til auðlindarentu, búa svo um hnútana að hér myndaðist auðlindarenta. Og nú á að búa svo um hnútana að byggðarlögin fái enn meiri hluta af þessari rentu í sinn hlut með því að leiðrétta þessi veiðigjöld. Þetta er kjarni málsins nákvæmlega og ég fagna því ef ætlunin er að ræða (Forseti hringir.) þetta frekar í atvinnuveganefnd en það þarf þá, hv. þingmaður, að vera út frá staðreyndum.