veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra bara kærlega fyrir nákvæmlega þessa punkta. Í Noregi er verið að reka sjávarútveginn sem byggðastefnu, á öllum ströndunum og hvert sem farið er. Þessi umræða verður því svolítið bjöguð. (Atvvrh: Það kemur ekkert málinu við.) — Jú, það gerir það náttúrlega, jú. (Atvvrh: Nei.) Það kemur þessu við. Þarna erum við svolítið komin með punktinn, hvar við erum stödd í þessu. Þarna er umræðan stödd. Og fórnarkostnaður — ókei, ég meina, hér er hæstv. ráðherra að tala um, ég skil það þannig, að það sé ákveðinn fórnarkostnaður hjá Norðmönnum varðandi þetta, hvernig þeir hafa ekki viljað fara þessa leið út frá byggðastefnu og hvernig þeir reka byggðastefnu sína gríðarlega mikið á þessu eins og við þekkjum. Síðan hef ég ekki tíma til að ræða tæknibyltinguna sem ég kom reyndar inn á fyrr í umræðunni, hvað hefur gerst hér og hvernig þessi iðnaður hefur orðið til hjá þeim sem stýra tækniiðnaðinum, Vélfag og Marel og öll þessi fyrirtæki. En ástæðan er náttúrlega (Forseti hringir.) sú að það varð áfall en við getum ekki farið aftur til 1990 með íslenskan sjávarútveg. Ég viðurkenni það að þetta hefur víða verið mjög erfitt, (Forseti hringir.) það er öllum ljóst. En við förum ekki aftur þangað og viljum það ekki. Við ætlum að reyna að skapa (Forseti hringir.) lífsgæði í þessu landi, lífsafkomu í samfélaginu í heild sinni, með þessari atvinnugrein. Við ætlum ekki að veikja hana til að veikja kjörin í landinu.