156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:53]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér. Ég deili í sjálfu sér áhyggjum hans af fyrirsjáanleika í byggðum landsins. Það skiptir auðvitað máli fyrir sveitarfélög, hvar sem þau eru, að það sé einhver byggðafesta, að það sé einhver stöðugleiki, einhver fyrirsjáanleiki sem hægt er að treysta á. En að því sögðu þá erum við með kvótakerfi og heimildir til að framselja kvóta sem getur haft áhrif á þetta og hefur gert það í gegnum tíðina.

Hv. þingmaður er væntanlega að tala um þann veruleika sem blasir við þeim byggðum sem kvótinn er núna til staðar í. En við höfum svo sem verið að sjá breytingar á því þrátt fyrir að ekki hafi verið um að ræða hækkun á auðlindagjöldum. Í Þorlákshöfn hætti Ísfélagið starfsemi árið 2024, það voru 34 störf. Árið 2023 hætti Síldarvinnslan bolfiskvinnslu á Seyðisfirði, það voru 30 störf. Brim lokaði fiskvinnslu Kambs í Hafnarfirði 2023, það var 31 starf. Það var ekkert verið að hækka nein veiðigjöld. Það eru tugir starfa að flytjast á milli byggðarlaga vegna þess að það er verið að færa til störf, þangað sem hagkvæmast er að vinna þetta hverju sinni eða af því að útgerðaraðilum þóknast að færa starfsemina til.

Ég vil því spyrja hv. þingmann: Hefur hann ekki áhyggjur (Forseti hringir.) af því að sýknt og heilagt sé verið að færa til störf til verulegs skaða fyrir byggðir landsins?