veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir andsvarið. Það er einmitt það sem ég kom aðeins inn á í ræðu minni áðan, þ.e. tæknibyltingin og það hve gríðarleg breyting hefur orðið á síðustu 30–35 árum í fiskvinnslu. Ætli fiskvinnslustöðvar — ég veit að frænka mín, Lilja Rafney Magnúsdóttir, gæti kannski komið hingað upp og leiðrétt mig. Mig minnir að í kringum 1990 hafi þetta verið 9.000 til 10.000 störf sem voru í fiskvinnslunni á Íslandi, ætli þau séu ekki 3.000 í dag, 35 árum seinna. Þetta er bara þessi ótrúlega breyting sem hefur orðið. Þetta er líka tæknibyltingin. Eins og ég kom inn á áðan fóru í bolfiskinum kannski 10 kíló í gegnum starfsmann á klukkustund í gömlu frystihúsunum en í hátæknihúsunum í dag, þar sem vatnsskurðarvélarnar og aðrar græjur frá Völku eru, geta þetta verið yfir 150 kíló, kannski 160, 170 eða 180 kíló á klukkutíma á starfsmann. Það er minni fiskur en menn höfðu í vinnslu í bolfiskinum þá. Það er þessi veruleiki sem er mjög stór hluti af þessu öllu saman. En fyrir mér eru það skrefin sem við þurfum að passa upp á, að við veikjum ekki forsendur og undirstöður þessara fyrirtækja og að við höldum þessari bolfiskvinnslu innan lands svo að við getum haldið áfram að gera þessa góðu hluti sem við erum að gera. Ég nefni líka þá breytingu sem varð með að flytja út ferskan fisk 2005 og 2006, þegar menn fóru í gámavæðinguna og ekki síður með beina fluginu, að fljúga beint út með fisk. Við getum haldið áfram að rekja þessa þróun áfram, það er bara hluti af þessu dæmi öllu.