veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Tæknibreytingar hafa þá haft þau áhrif að kvótinn fór frá Akranesi. Hann fór frá Tálknafirði, Flateyri, Hólmavík, Skagaströnd, Raufarhöfn, Þórshöfn, Seyðisfirði, Stöðvarfirði, Þorlákshöfn, Sandgerði, Keflavík, svo að eitthvað sé nefnt. Þá er spurningin þessi: Er ekki rétt að taka eitthvað af þessu í gegnum sameiginlega sjóði til að dreifa þessu þá líka til þeirra sveitarfélaga sem hafa orðið fyrir tjóni vegna þeirra tæknibreytinga sem hv. þingmaður er að nefna hér, til að við séum þá að deila því afgjaldi sem við fáum af auðlindum jafnt til sveitarfélaganna allra, ekki bara sumra?