veiðigjald.
Herra forseti. Ég er búinn að fara í gegnum tækniþróunina. Ef við eigum að fara í hvert og eitt einstakt þorp á Íslandi á einni mínútu þá vitum við að víða hafa orðið gríðarlegar breytingar. En atvinnulífið hefur líka breyst gríðarlega annars staðar og kannski eru langöflugustu möguleikarnir í því hér á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannabyggðum höfuðborgarsvæðisins að bregðast við út frá atvinnuforsendum. Við getum farið vítt og breitt um landið en þetta er veruleikinn með tækniframfarirnar. Ég á svolítið erfitt með að svara vegna þess að þetta er „afturhvarf til fortíðar“-hugmyndafræðin sem hv. þingmaður er að spyrja um. Við erum í brjálæðislegri samkeppni í þessari atvinnugrein og þetta snýst um að verja atvinnugreinina. Ef við ætlum að fara þessa norsku leið og minnka um leið getu fiskvinnslunnar til að vinna fiskinn á Íslandi eða vinna uppsjávarfiskinn á Íslandi og náttúrlega bolfiskinn þá mun þetta fara niður með. Það er það sem við þurfum líka að verja á þessum tímapunkti.