veiðigjald.
Virðulegi forseti. Mig langar að velta upp spurningum til hv. þingmanns. Ég er að velta fyrir mér þessari umræðu um að allt fari niður á við á landsbyggðinni í kjölfar þessara veiðigjalda, en mér finnst ansi svartsýn mynd dregin upp. Fyrirsjáanleikinn hefur ekki verið neinn varðandi sjávarplássin frá því að framsalið var sett á og bara í höndum hvers og eins fyrirtækis, sem hefur yfir að ráða aflaheimildum, hvenær það yfirgefur byggðirnar, eins og kom fram í fyrri ræðu.
En út af hverju ættu sjávarútvegsfyrirtæki í dag að hætta að vinna aflann út af hækkun á veiðigjöldum, nýju viðmiði, markaðsverði? Út af hverju? Þeim er í sjálfsvald sett að selja eigin vinnslu á hvaða verði sem er. Það er ekkert sem bannar þeim að selja á öðru verði en verðið sem veiðigjaldið miðast við, sem er raunvirði, markaðsvirði, eins og er verið að nálgast. Og hvað ætti að reka fyrirtækin til að hætta vinnslu hér heima sem eykur verðmætasköpun þeirra fyrirtækja mikið, og nú er roð mikið í umræðunni? Ættu menn þá að fara að senda roðið úr landi til að aðrir gætu hagnast á þeirri afurð sem hefur ekki verið nýtt áður? Út af hverju ættu menn að gera það? Þetta er ekki umræða sem er góð þegar menn tala þetta svona niður því að fiskvinnsla á Íslandi mun halda áfram burt séð frá þessari leiðréttingu á veiðigjöldum. Og líka þetta, að við erum núna búin að endurskoða þessa útfærslu á veiðigjöldum sem kemur sér mjög vel fyrir fjölda minni fyrirtækja sem eru á landsbyggðinni. Og stórútgerðin ræður algjörlega við þetta, það sýna tölur sem búið er að leggja fram.