veiðigjald.
Virðulegi forseti. Já, ég er alveg sammála því að það þarf að skoða það hvar sá útflutningur liggur, hjá hvaða fyrirtækjum og hvernig það skiptist eftir aflahlutdeild viðkomandi fyrirtækja. Það væri auðvitað mjög einkennilegt ef menn færu að flytja frá sér verðmæti sem þeir gætu skapað hér heima til einhverra annarra. Ég hef ekki trú á því að það muni raungerast. Ég þekki ágætlega til minni fiskvinnslufyrirtækja og þau hafa verið að fjárfesta, ég þekki það bara úr minni heimabyggð, í nýjum tæknibúnaði sem þau reikna með að greiða upp á þremur árum. Ég tel ekki að þessi breyting á veiðigjöldum, þar sem er mjög góður afsláttur til þessara minni fyrirtækja, búið að auka það með þeirri nýju útfærslu sem liggur hér fyrir þinginu, hafi áhrif. Varðandi stórfyrirtækin sýna allar tölur að þau ráða við að borga hærri veiðigjöld og umframhagnaður þeirra hefur farið í fjárfestingar hér á höfuðborgarsvæðinu í óskyldum rekstri og það kallast ekki nýsköpun í sjávarútvegi. Það er ekki gott, finnst mér, það ætti frekar að lenda í höndum þjóðarinnar svo að hægt sé að nýta það í innviðauppbyggingu.