veiðigjald.
Herra forseti. Hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir kom inn á nýju útfærsluna. Í umræðunni fyrr í dag benti ég á þá breytingu sem þó hefur orðið á málinu hvað varðar minnstu aðilana og miðlungsfyrirtækin, það hefur orðið breyting til að koma til móts við það. En við eigum eftir að fara í gegnum það í hv. atvinnuveganefnd hvort þessi breyting sé nægilega mikil og hversu mikil áhrif hún hefur. Ég hef áhyggjur nákvæmlega af þessum fyrirtækjum sem hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir kemur inn á varðandi sinn heimabæ, Suðureyri. Ég hef áhyggjur af fyrirtækjum eins og Íslandssögu sem er kannski akkúrat að vinna þessi 3.000–4.000 tonn eða hvað, ég er ekki með nákvæmar tölur í kollinum. En þarna liggja mínar áhyggjur að töluverðu leyti hvað það varðar, hvernig þetta muni þróast á næstu misserum.