veiðigjald.
Virðulegi forseti. Leiðrétting veiðigjalda er sanngirnis- og réttlætismál. Með henni er verið að innheimta gjöldin með þeim hætti sem átti að gera og með þeim hætti að þau skili tekjum í ríkissjóð umfram þann kostnað sem ríkissjóður hefur af þjónustu við sjávarútveg; tekjum sem munu nýtast í innviðauppbyggingu, m.a. löngu tímabærar samgöngubætur á landsbyggðinni. Með leiðréttingu veiðigjalds er ekki verið að tefla sjávarútvegi í neina hættu. Áfram mun veiðigjald leggjast á hagnað á veiddan afla og skiptist þannig að 33% af virði hans fara í veiðigjald en útgerðin heldur eftir 67%. Ef vel gengur og hagnaður útgerðarinnar er mikill hækkar veiðigjaldið. Ef illa árar og hagnaður útgerðarinnar dregst saman lækkar það.
Það hefur verið mjög góður gangur í greininni árum saman sem hefur m.a. skilað því að uppsafnað eigið fé innan hennar var komið í 450 milljarða kr. í lok árs 2022 og hefur án efa aukist umtalsvert síðan. Það er þrátt fyrir tugmilljarða króna arðgreiðslur á hverju ári til eigenda útgerðar. Rekstrarhagnaðarhlutfall er mun hærra en gengur og gerist í öðrum atvinnugreinum á Íslandi og verður það áfram eftir þessar breytingar. Greining atvinnuvegaráðuneytisins sýnir að ef veiðigjöld hefðu verið innheimt árið 2023 hefði samanlagður hagnaður sjávarútvegs lækkað úr 67,5 í 59,9 milljarða kr., það er allt og sumt. Hagnaðurinn hefði verið 60 milljarðar kr. á einu ári ef 7,5 milljarðar hefðu fengið að rata í ríkissjóð til eiganda auðlindarinnar og í mikilvæg innviðaverkefni. Það er því enginn vafi á að það er umtalsvert svigrúm til staðar innan sjávarútvegs að greiða meira til eiganda auðlindarinnar fyrir nýtingu hennar. Sömu vönduðu greiningar atvinnuvegaráðuneytisins sýna skýrt að áhrif breytingarinnar á lítil og meðalstór fyrirtæki í sjávarútvegi eru hverfandi. Mikil hækkun á frítekjumarki tryggi það. Tíu stærstu fyrirtækin í greininni munu þannig greiða 67% af veiðigjöldum á næsta ári og 20 stærstu munu greiða 84% þeirra. 30 stærstu fyrirtækin munu greiða 90% allra veiðigjalda.
Í greinargerð frumvarpsins sem hér er til umræðu er slegið skýrt á þær áhyggjur sem viðraðar hafa verið um neikvæð áhrif leiðréttingar veiðigjalda á sveitarfélög sem byggst hafa upp í kringum sjávarútveg. Þær áhyggjur virðast raunar alla tíð hafa byggt á einhvers konar misskilningi. Það er ekki verið að leggja til með neinum hætti breytingar á rekstri fiskvinnslufyrirtækja eða segja útgerðum sem eiga sínar vinnslur sjálfar á hvað þær eigi að selja sjálfum sér fisk. Það er hins vegar verið að færa í lög að veiðigjaldið sem útgerðirnar verða að greiða taki mið af markaðsvirði, ekki því verði sem útgerðirnar ákveða sjálfar. Það er sanngjarnt, það er réttlátt. Það verða engin áhrif á sveitarfélög á landinu nema stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja sem hafa fengið að byggjast upp innan þeirra með stuðningi samfélagsins og hins opinbera ákveði að leika þann leik. Það er mjög mikilvægt að segja það upphátt að þessi fyrirtæki þurfa ekki að gera neitt til að skaða sveitarfélög vegna leiðréttingar veiðigjalda. Ef það gerist er það vegna þess að fyrirtækin velja að gera það svo þau geti undirbyggt áróður sinn. Ef það gerist þyrfti að skoða vandlega kosti og galla þess að setja á einhvers konar vinnsluskyldu eða útflutningsálag.
Virðulegi forseti. Við erum öll í því að reka samfélag saman. Það þurfa allir að leggja sitt til svo að það gangi sem best. Ég var kjörin á Alþingi til að vinna fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu. Ég var kjörin á Alþingi til að gæta almannahagsmuna margra, ekki sérhagsmuna fárra á kostnað allra hinna. Það hefur verið skýrt ákall í áratugi um að sjávarútvegur greiði réttlátt gjald fyrir aðgang að auðlind í eigu þjóðar. Það ákall birtist í hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri og það ákall kom skýrt fram í síðustu kosningum þegar þrír flokkar með leiðréttingu veiðigjalda á stefnuskrá sinni voru kosnir til valda. Ég finn það ákall skýrt í ferðum mínum um mitt kjördæmi, Norðausturkjördæmi. Almenningur er með okkur. Undan þeirri ábyrgð ætlum við ekki að víkjast.