veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur fyrir ræðuna. Ég tel að við séum að ræða hér mjög mikilvægt samfélagsmál sem því miður virðist alltaf verða einhvers konar ásteytingarsteinn úti í samfélaginu og reyndar líka hér í þingsal. Það er engin launung að það frumvarp sem við ræðum hér er skattahækkun. Það er skattahækkun á útgerðina, á okkar öflugustu atvinnugrein, sjávarútveginn. Mig þyrstir að vita hvort hv. þingmaður hafi skipt um skoðun eða hvort hún telji að núverandi frumvarp sé einhvern veginn sanngjarnara en það sem áður hefur fjallað um.
Nú er ég að vísa í það, virðulegur forseti, að hv. þingmaður sat áður í bæjarstjórn í Fjarðabyggð og þar liggur fyrir harðorð bókun frá árinu 2018, þegar hér á Alþingi var verið að fjalla um breytingar á umræddum lagabálki er sneri að því að færa gjaldtökuna nær í tíma. Það var aðalumræðuefnið. Þá bókaði bæjarráð Fjarðabyggðar harðlega á móti þeim breytingum, taldi þær hækkun á heildartekjur útgerðarinnar, benti sérstaklega á mikilvægi sjávarútvegsins í þeirra sveitarfélagi, hversu öflug þessi fyrirtæki væru og sagði að slík hækkun myndi verða til þess að fjárfestingar og frekari uppbygging í sjávarútvegi myndi dragast saman.
Nú spyr ég hv. þingmann: Telur hv. þingmaður að það frumvarp sem hér liggur fyrir, og er augljóslega skattahækkun á fyrirtæki eins og þau sem eru í sveitarfélagi hv. þingmanns, muni ekki hafa áhrif á þessi fyrirtæki og það fallega samfélag sem er fyrir austan?