veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og verð að viðurkenna að þegar ég studdi ríkisstjórn 2018 og það var verið að gera breytingar á lögunum sem fólu í sér að færa gjaldtökuna nær í tíma — það var raunveruleg leiðrétting. Þetta er skattahækkun. Þetta er ekkert annað en skattahækkun. Þetta mun þýða að þessi stóru fyrirtæki, sem einmitt eru sérstaklega í Norðausturkjördæmi, en þó víða um landið, munu þurfa að greiða aukin gjöld. Og að öllum líkindum, eins og allar umsagnir segja til um, þá mun það hafa áhrif á þessi samfélög.
Þá langar mig, virðulegur forseti, að benda á athugasemd frá Fjarðabyggð í samráðsgáttinni þar sem nákvæmlega þessar sömu áhyggjur eru ítrekaðar og miklu meiri áhyggjur nú en voru kannski 2018 þegar verið var að færa gjaldtökuna nær í tíma. Ég spyr hv. þingmann aftur: Samfélagið fyrir austan, sem á mikið undir því að vera með öflug fyrirtæki sem bæði skaffa atvinnu en standa líka undir stuðningi við íþróttafélögin og samfélagið allt — hefur hv. þingmaður í alvöru þá trú að það frumvarp sem við ræðum hér, verði það að veruleika, muni ekki hafa áhrif á það sterka samfélag sem þar er í dag?