156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:19]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið. Já, ég stend við þetta. Þetta er leiðrétting á veiðigjöldum og það eru ýmsar greiningar sem liggja þar að baki. Við finnum gríðarlegan stuðning og ég stend sannarlega með Norðvesturkjördæmi og landsbyggðinni og landinu öllu við að fara í þessar leiðréttingar og ég hef ekki áhyggjur af þessum stóru fyrirtækjum. En veiðigjöldin eru reiknuð af hagnaði, við skulum muna það.