156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, ég hef verið að fylgjast með. Það er gaman að sjá að stjórnarliðar hafa loksins ákveðið að heiðra þinghúsið með nærveru sinni. Það er brotið blað í sögu þingsins á undanförnum vikum þar sem hv. þingmenn stjórnarliðsins hafa horfið úr þinghúsinu og ekki tekið þátt í einni einustu umræðu svo heitið getur. Sömuleiðis vil ég nota tækifærið og þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera með okkur. Það er fallega gert en það er algjörlega nýtt, og ég er nú búinn að vera hér í nokkurn tíma, að stjórnarliðar hafi horfið úr þinghúsi þegar verið er að taka umræðu um alvarleg mál. Og ég fylgist sérstaklega hér með hv. þingmönnum stjórnarliðsins af landsbyggðinni. Ég fer betur í það í minni ræðu á eftir.

En hv. þingmaður sagði hluti sem ég þakklátur fyrir að hv. þingmaður upplýsti þing og þjóð um. Hér var sagt skýrt að ef þessi fyrirtæki, virðulegi forseti, myndu gera eitthvað í kjölfar þessarar skattahækkunar sem myndi hafa áhrif á sveitarfélögin yrði gripið til aðgerða, útflutningsskatta eða eitthvað slíkt. Mig langaði bara að heyra frá hv. þingmanni: Hvernig mun þetta fara fram? Þetta er auðvitað stórfrétt. Ég man ekki eftir því að svona hafi verið kynnt af stjórnvöldum áður. Þá væri áhugavert að vita hver eigi að hafa framkvæmdina með því. Mun ráðuneytið fylgjast með fyrirtækjunum, Skatturinn, sérstök stofnun? Hverjir munu fylgjast með því að þau hagi sér vel eftir skattahækkunina?