156. löggjafarþing — 34. fundur, 5. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir andsvarið. Já, ég kom í ræðu minni inn á vinnsluskyldu eða útflutningsálag. Það er í því samhengi að ef fyrirtæki væru að leggja niður vinnslu eða rekstur, á þeim forsendum að það væri út af þessari leiðréttingu á veiðigjaldi, hefði ráðherra í raun heimild til að skoða þau mál, þ.e. að skoða kosti og galla þessa máls sem myndi þá fara fram undir stjórn ráðherra málaflokksins.