156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:26]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þessari umræðu og gaman að sjá hv. þingmenn stjórnarliðsins, sjaldséðir hvítir hrafnar. Við erum hér komin með mál sem er algjört einsdæmi í mannkynssögunni. Hér er verið að tvöfalda skatta og það mun ekki hafa nein áhrif á nokkurn skapaðan hlut. Hér hefur verið upplýst af hv. stjórnarþingmanni að ef einhver fer að gera eitthvað og vísa til þess að hann hafi fengið meiri skatt þá verði tekið á því og ríkisstjórnin væri með fullt af hugmyndum þar að lútandi. Nú vildi ég að ég væri að ýkja en allir sem fylgdust með umræðunni áðan gátu fylgst nákvæmlega með því hvað hér var sagt. Það er augljóst að það er verið að malla þetta í pottum hæstv. ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Það er alveg með ólíkindum að fara í gegnum greinargerðir með þessu frumvarpi þar sem menn eru að tvöfalda skatta — nei, fyrirgefið, það má ekki segja það, þetta er leiðrétting. Auðvitað mun öllum líða miklu betur þegar þeir greiða hærri skatta og það heitir leiðrétting. Í raun ættum við bara að breyta nöfnunum á sköttunum okkar. Tekjuskattur, segjum bara að það sé leiðréttingarskattur, það verður allt miklu betra á eftir.

Virðulegi forseti. Þetta gengur bara út á það að það er verið að taka meiri pening af fyrirtækjunum og fara með til Reykjavíkur. Flest þessi fyrirtæki eru úti á landi, það er ekkert flókið í því. En það er alveg farið yfir það að þetta mun ekki hafa nein áhrif á fyrirtækin, engin, bara ekki nein. Þetta hefur engin áhrif á sveitarfélögin sem byggja afkomu sína á þessum fyrirtækjum sem eru stór á þeirra mælikvarða, bara engin. En ef það gerist þá getur ríkisstjórnin tekið aðeins á því og látið umrædd fyrirtæki finna fyrir því. Það eru hugmyndir uppi um það, það hefur komið hér fram í umræðunni. Þjónustuveitendur — af því að nú er það þannig að ef útgerð eða einhver fyrirtæki ganga ekki vel þá hafa þau minni möguleika á því að fjárfesta þannig að einhverjir draga þá ályktun, sem er náttúrlega fáránlegt, að ef það er minna hjá fyrirtækjunum, vegna þess að ríkið tekur meira, þá geti þau ekki fjárfest jafn mikið. Nei, engin áhrif. Þetta er nefnilega ekki skattur, þetta er leiðrétting, engin áhrif í fyrsta skipti í mannkynssögunni.

Ég hlýt að spyrja af hverju þetta er bara tvöfaldað. Af hverju er þetta ekki bara fjórfaldað eða áttfaldað? Þetta hefur engin áhrif. Þið kallið þetta bara leiðréttingu. Ef þetta hefur engin áhrif, af hverju er þetta ekki miklu hærra? Það segir sig sjálft. Það er með ólíkindum að hlusta á þessa umræðu hér vegna þess að það er eins og enginn muni hvaðan við komum og hvað við erum búin að fara í gegnum. Síðast þegar ég sá tölur OECD um ríki OECD, þau eru ekki öll, sem sleppa því að veita ríkisstyrki í sjávarútvegi þá var eitt land sem sleppti því, Ísland. Íslenskur sjávarútvegur er að keppa við ríkisstyrktan sjávarútveg úti um allan heim. Ef menn halda að íslenskur sjávarútvegur sé í þeirri stöðu að allir úti um allan heim sitji og bíði eftir að fá íslenskan fisk á sinn disk þá er það ekki þannig. Íslenskur sjávarútvegur er í samkeppni, harðri samkeppni, upp á hvern einasta dag eins og öll íslensk útflutningsfyrirtæki. Og hér minnast menn ekki einu orði á samkeppnishæfni. Það skiptir bara engu máli.

Svo erum við að vísu með fjármálaáætlun þar sem við getum ekki einu sinni farið eftir lögum, komin tugi ára aftur í tímann út af skussavinnubrögðum þessarar ríkisstjórnar, þar sem menn eru bara með tvær sviðsmyndir, eins og fjármálaráð bendir á, bjartsýnu sviðsmyndina og svo er það líka bjartsýna sviðsmyndin því að svartsýna sviðsmyndin er ekki svartsýn, hún er bjartsýn. Nei, við erum að horfa á tollastríð. Utanríkisráðherrann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hvað sagði hún: Tollastríð, högg fyrir sjávarútveginn, högg fyrir íslenskan sjávarútveg. Hver eru viðbrögð ríkisstjórnarinnar? Nú högg, endilega meira, að sjálfsögðu. Það er það sem þú gerir við þinn eigin atvinnurekstur, lætur hann finna almennilega fyrir þessu. Tollarnir eru ekkert nóg.

Það er ekkert langt síðan, virðulegi forseti, af því að við erum alltaf að rífast um sjávarútveg og munum alltaf gera og það er bara gott — ég vonast til að þessi umræða verði til þess að menn muni úr hvaða umhverfi við komum því að það er ekkert rosalega langt síðan að við vorum að rífast um það hvað við ættum að setja mikla peninga úr ríkissjóði í sjávarútveginn. Ég verð að viðurkenna að mér finnst áhugavert að hlusta á landsbyggðarþingmenn stjórnarliðsins koma hér upp og reyna að útskýra fyrir eigin kjósendum að það sé svo stórkostlegt að taka peninga úr viðkomandi kjördæmum og fara með til Reykjavíkur — það er svo stórkostlegt. Ég er þingmaður Reykvíkinga, þetta er geggjað. Við erum að fá fullt af peningum inn. Nei, nei. Menn eru komnir með söguna: Já, við ætlum að fara með þetta aftur út í kjördæmin, borga innviðaskuldina. Höfum við heyrt þetta áður? Jú, virðulegi forseti, við erum búin að heyra þetta í áratugi. Hefur þetta gengið eftir? Nei, nei, það hefur ekki gengið eftir. (Gripið fram í.) Hér kallar þingmaður vinstri flokks: Vegna þess að þið hafið stjórnað. Ég er í flokki sem trúir því að það sé betra að það sé eitthvað eftir þar sem verðmætasköpunin er. Það er besta ráðið. Það er alveg rétt að við höfum verið í stjórn og höfum örugglega mátt gera margt miklu betur en í samanburði við þessa ríkisstjórn komum við alltaf vel út. Það er athyglisvert að hér komi landsbyggðarþingmenn og segi við sína kjósendur: Við ætlum að taka fjármagnið frá ykkur, við ætlum að fara með það suður til Reykjavíkur og við lofum að koma með það til baka.

Eitt skýrt dæmi um hvað þessi hugmyndafræði gengur vel er Ofanflóðasjóður. Það er tekinn skattur af fasteignum í þessu landi, ofanflóðagjald, og það á að byggja upp ofanflóðavarnir. Skuldir núna eru alla vega 17 milljarðar. Af því að hv. þingmaður horfir á mig — síðasta ríkisstjórn stóð sig best í skussabekknum að skila þessu til baka. Þetta er það sem landsbyggðin hefur mátt búa við. En nú ætla þessir flokkar, sem fengu góða kosningu á landsbyggðinni, svo sannarlega að launa kjósendum sínum með þessum hætti. Þó svo að ég sem þingmaður Reykvíkinga gæti sagt: Heyrðu, það er nú gott að fá peningana í hítina í ríkissjóð í Reykjavík, þá er það auðvitað ekki hagur okkar Íslendinga að ganga svona fram.

Virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn er búin að fara áratugi aftur í tímann þegar kemur að ríkisfjármálum. Það er sorglegt að lesa úttekt fjármálaráðs á fjármálastefnu og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar er bent á hið augljósa, að ekki er farið eftir lögum. Þar er bent á hið augljósa, að við séum með mjög bjartsýna spá á sama tíma og við erum að horfa á mikla óvissu, svo að ekki sé dýpra í árinni tekið, í alþjóðamálum. Mun það hafa áhrif á okkur Íslendinga? Já, það mun gera það og þessi metnaðarlausa fjármálaáætlun gengur aðallega út á það að trúa því að allt verði ofsalega gott. Og skattahækkanirnar, þær heita leiðréttingar.

Ég vil vísa hér aðeins í þessar tekjuhugmyndir ríkisstjórnarinnar — þ.e. að ætla að skattleggja alla ferðamenn, það þýðir bara flugfarþega, þannig að Íslendingar sem fljúga oft borga oft skatt til að fá að skoða sína eigin náttúru — og þetta er gert án þess að búið sé að vinna nokkra vinnu eða skilgreina nokkurn hlut í því. En þessar framkvæmdir hafa aldrei gengið vel, en það gengur mun betur eins og verið hefur að við höfum verið að rukka þjónustugjöld fyrir bílastæði og salernisaðstöðu eða annað slíkt. En þegar kemur að sjávarútveginum þá segir í úttekt fjármálaráðs, virðulegi forseti, með leyfi:

„Boðaðar breytingar munu hafa áhrif á ólíka útgerðarflokka með ólíkum hætti. Með boðuðum mótvægisaðgerðum er sumum útgerðarflokkum gert hærra undir höfði en öðrum. Slíkt vekur upp spurningar hvort áformaðar breytingar séu hugsaðar til þess að hámarka þjóðhagslegan afrakstur af nýtingu sjávarauðlindanna eða hvort einnig sé verið að líta til annarra þátta, svo sem byggðasjónarmiða eða annarra pólitískra áherslna.“

Með öðrum orðum, það er ekkert vitað hvert markmiðið er eða hvað menn eru að gera. Og menn koma hér í fullri alvöru með íslenskt lagafrumvarp um að það eigi að miða hlutina við verð í Noregi. Svo eru hæstv. ráðherra og hv. þingmenn að deila um það hvernig sjávarútvegskerfið er í Noregi, hvernig hlutirnir eru í Noregi.

Virðulegur forseti. Hefði verið skynsamlegt, ef menn ætla að vinna þetta af vandvirkni og ábyrgð, að byrja kannski á að taka út kerfið í Noregi, bera það saman við íslenska kerfið þannig að umræðan væri ekki á þann veg, af því að það er verið að kalla eftir málefnalegri umræðu, að menn séu að segja frá því hvernig þeir halda að þetta sé í Noregi? Einhver? Væri það kannski skynsamlegt að byrja að vinna heimavinnuna, byrja að kanna hvernig staðan er þar? Kannski koma með úttekt eða skýrslu þannig að við myndum vita nákvæmlega á hvaða forsendum þetta verð er sem menn kalla markaðsverð. Markaðsverð getur komið til af allra handa ástæðum. Við vitum það hins vegar að við Íslendingar erum með þá sérstöðu að íslenskur sjávarútvegur nýtir nærri allan afla. Einhver kynni að segja: Heyrðu, auðvitað gerum við það. Í heiminum er 50% af afla, helmingi, hent. Fyrir nokkrum árum gerðum við það sama. Nú er sumt af því sem við nýtum sem við hentum áður verðmætara en það sem við höfum alltaf selt. Nú, ef hæstv. ríkisstjórn kæmi hér og segði: Heyrðu, við ætlum að taka málin aðeins út, við ætlum að skoða það hvernig við getum tryggt samkeppnishæfni útgerðarinnar gagnvart erlendum aðila og hámarkað arð okkar Íslendinga. Við viljum ræða það, undirbyggja það. Jú, gott byrjum á því. En það er ekkert slíkt í gangi. Menn koma í fullri alvöru og veifa því í ræðustól þingsins að ástæðan fyrir því að þeir fara í þetta sé sú að þetta sé svo vinsælt. Þessir útgerðarmenn eru ekkert að drepast úr vinsældum þessa dagana, það geta verið alls konar ástæður fyrir því. En þetta er ekki þannig að ef einhver er óvinsæll þá bara reynir þú að skattleggja hann. Fyrir utan það að þessir aðilar sem eru umdeildastir í þjóðfélaginu, þeir verða ekkert fyrir þessu. Þetta snýst um samkeppnishæfni fiskvinnslunnar í landinu og þú ert með litla staði á íslenskan mælikvarða sem eiga mikið undir því að fiskvinnslan, útgerðin, sé samkeppnishæf. Og það er fullkomlega augljóst, þegar maður hlustar á þessa umræðu, að orðið samkeppnishæfni kemur aldrei fram, það er aldrei nefnt, bara aldrei. Við erum að horfa upp á tollastríð sem mun hafa þær afleiðingar á einhverjum tímapunkti, ef það hefur ekki gert það nú þegar, að það hefur áhrif á kaupmátt almennings í þeim löndum sem kaupa af okkur fiskinn. Við erum að sjá allra handa óveðursblikur eins og fjármálaráð bendir á í umsögn sinni. Það eru allir að búa sig undir það með einum eða öðrum hætti. Hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagði: Tollastríð er högg fyrir sjávarútveginn. Svar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er að berja aðeins meira á sjávarútveginum.