156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:41]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu, svo ekki sé meira sagt. Mér fannst hann tala full digurbarkalega um ábyrgð Sjálfstæðisflokksins og óábyrga ríkisstjórn. Það er bara staðreynd, og það er ekkert hægt að hlaupa yfir það og/eða breyta sögunni, hún er nú bara þannig, að Sjálfstæðisflokkurinn skilaði hér gríðarlegum halla á ríkissjóði og það er það sem þessi ábyrga ríkisstjórn er að takast á við. En hann er að tala um að þetta sé vinsælt. Auðvitað er þetta vinsælt, þetta er vinsælt mál. Þetta er vinsælt, m.a. í Fjallabyggð, vegna þess að fólk hefur horft upp á það á Siglufirði og Ólafsfirði að það er búið að selja allar veiðiheimildir í burtu. Ég held bara að Sjálfstæðisflokkurinn sé búinn að missa af lestinni. Það vantar eitthvert jarðsamband þarna. Það er bara þannig að þjóðin segir, og tekur undir með okkur í ríkisstjórnarflokkunum, að ef það eigi að meta verðmæti þá hljóti það að vera gert með markaðslögmálunum. En Sjálfstæðisflokkurinn er úti í móa.