veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil auðvitað þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. En ég veit ekki hvort ég missti af einhverju, var einhver spurning í þessu? Var hv. þingmaður ekki að halda ræðuna sína um Sjálfstæðisflokkinn? Það er alltaf áhugavert að hlusta á sömu ræðuna aftur og aftur. Þetta er náttúrlega eitt mesta „Groundhog day“ sem nokkur getur upplifað að hlusta á hv. þingmann hjala um Sjálfstæðisflokkinn.
Ég spyr bara hv. þingmann, af því að hv. þingmaður átti að spyrja mig (Gripið fram í.) — já, það er þannig að hv. þingmaður fór í andsvar til að spyrja mig. Ég get ekki svarað af því að ég fékk ekki neina spurningu. Ég get þó spurt: Getur hv. þingmaður talað um eitthvað annað en Sjálfstæðisflokkinn? Bara já eða nei spurning? En það sem ég var að vitna í, virðulegur forseti, var álitsgerð fjármálaráðs um tillögu til þingsályktunar um fjármálastefnu fyrir (Forseti hringir.) árin 2026–2030 og fjármálaráð er ekki partur af Sjálfstæðisflokknum.