veiðigjald.
Frú forseti. Ég vona að hv. þingmaður átti sig á því að ég var nú bara að koma með þessa leiðréttingu og veita honum örlítið jarðsamband af væntumþykju, þannig að flokkurinn geti náð áttum. Þetta er auðvitað alveg með ólíkindum að hlusta hér á hv. þingmann Sjálfstæðisflokksins: Hvað er það ef það á ekki að nota raunvirði afla sem fæst á markaði til þess að ákvarða verðmæti? Sjálfstæðisflokkurinn vill eitthvað allt annað. Það er eitthvað mjög skrýtið, jafnvel fá verð úr einhverri nefnd á vegum ríkisins þar sem aðilar, annars vegar sjómenn og útvegsmenn, eru að takast á um hvernig eigi að skipta hlutnum og ákveða það. Er ekki bara eðlilegra fyrir flokk sem einhvern tíma kenndi sig við frjálsan markað að taka mið af markaðsverði? Nei, menn verða bara hálf foj ef þeim er bent á að þeir séu bara (Forseti hringir.) komnir út í móa og þurfi að ná einhverju jarðsambandi.