veiðigjald.
Frú forseti. Við ræðum hér leiðréttingu, það er verið að leiðrétta veiðigjöld sem hafa verið innheimt í sjávarútvegi. Mig langar að byrja á því að fagna, það er gaman að hafa hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson með okkur í þingsalnum og ræða þessi mál við hann. Mér fannst málflutningurinn merkilegur hér áðan og mig langaði aðeins að spyrja út í það. Nú liggur fyrir að íslenskur sjávarútvegur er að nýta nærri 100% aflans, eins og kom fram í ræðu hv. þingmanns, sem er gríðarlega mikilvægt og það er auðvitað mjög verðmætt fyrir okkur, en aðrar þjóðir eru að nýta 50%, hv. þingmaður sagði 50% hér áðan. Þá veltir maður fyrir sér: Ef við nýtum allan afla er þá ekki meira verðmæti í honum?