veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að þetta sýni best, þetta andsvar, að við þurfum að fara að ræða sjávarútvegsmálin betur og í fullri alvöru. Þekking þingmanna, alla vega sumra, er kannski ekki mikil, eðlilega af því að þetta hefur lítið verið rætt. En það sem ég er að vísa í, og þarf kannski að fara aðeins dýpra í, er þetta: Helmingi af afla er hent eins og við gerðum áður. Núna erum við að nota bein og roð og annað slíkt. Og af hverju erum við að gera það en aðrir ekki? Það er af því að búið var til fiskveiðistjórnarkerfi sem miklar deilur voru um. Það hefur ekki bara kosti, og menn geta haft allar skoðanir á því. En það er ótrúlega gott að við skulum hafa í því sjálfbærni og líka verðmætasköpun, að við séum með þá hvata í kerfinu að menn geti skipulagt starfsemi með þeim hætti að fyrirtækin, og menn tala lítið um það, geta líka sett fjármuni í að þróa þessa tækni þannig (Forseti hringir.) að við erum að selja í fæðubótaefni, snyrtivörur. Frægasta dæmið er Kerecis (Forseti hringir.) og þetta er bara eitthvað sem við getum verið mjög stolt af. En við erum að keppa við (Forseti hringir.) ríkisstyrktan sjávarútveg vegna þess að þar er fyrirkomulagið svo ónýtt að skattgreiðendur þeirra landa þurfa að greiða niður viðkomandi atvinnugrein eins og við þurftum að gera áður.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmann um að virða ræðutíma sem er ein mínúta.)