156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:49]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa kennslu. Ég vil samt sem áður benda á, ef verið er að tala um vanþekkingu á sjávarútvegi hér, að ég hef unnið í sjávarútvegi. Ég þekki nokkuð vel til sjávarútvegs. Þó að ég sé búsettur í Grafarvogi þá hefur maður samt sem áður kynnst ýmsu þarna. Auðvitað er sjávarútvegur gríðarlega mikilvægur fyrir okkar samfélag. En hvað þá fullyrðingu varðar að með því að leiðrétta veiðigjaldið, af því að það kom fram áðan í ræðu hv. þingmanns, sé verið að flytja fjármuni til höfuðborgarinnar, suðvesturhornsins, þá er það bara ekki rétt. Ég ætla að segja það hér. Að hluta til er sjávarútvegur rekinn hér á höfuðborgarsvæðinu og það er jafnframt verið að innheimta sömu veiðigjöld hér og þetta mun að lokum skila sér í aukinni uppbyggingu og lagfæringum á innviðum. Og það er líka það sem verið er að kalla eftir af þjóðinni, að greiða fyrir auðlindir og byggja upp innviðina.