156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:55]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég biðst velvirðingar á því að hafa verið svona ósanngjarn og ég var það augljóslega því að ekki tókst hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni að svara mér. Ég er alveg á sama stað og þegar ég steig í pontu áðan. Ég fæ ekki séð hvernig — ég tala nú ekki um ef við leyfum okkur að hugsa út í framhaldið, fordæmisgildið af slíkum aðgerðum — það má vera að ef forsendubrestur verður í rekstri félaga á einkamarkaði og það verður að loka honum, hverjar svo sem söluvörurnar eru og hvar í heiminum sem markaðurinn er, þá sé hægt að neyða einstaklingana til að reka fyrirtækin áfram. Er þá hægt að neyða einstaklingana til að reka fyrirtækin áfram? Ég átta mig bara ekki á því, hv. þingmaður, hvers lags viðurlög þetta eru.