veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ræðu. Ég er svolítið á sömu nótum og ég var varðandi andsvar við ræðu hv. þm. Jens Garðars Helgasonar. Ef ég gef mér þær forsendur sem voru hér á síðasta kjörtímabili — þá var í smíðum frumvarp um hækkun veiðigjalda en það kom ekki inn í þingið heldur var í samráðsgátt. En ég gef mér þá forsendu að það hafi jafnvel staðið til að hækka veiðigjöld á þeim tímapunkti og spyr hv. þingmann: Er borð fyrir báru til að hækka veiðigjöld? Og ef svarið við því er jákvætt: Með hvaða hætti sér hann fyrir sér að hægt væri að hækka það án þess að það hefði stórkostleg áhrif á starfsemi útgerðarfyrirtækja, sjávarútvegsfyrirtækja, og jafnframt afkomu sveitarfélaga?