156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:58]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir heiðarlega og góða spurningu. En mín nálgun er þessi: Ástæðan fyrir því að við í Sjálfstæðisflokknum berjumst fyrir lágum sköttum er sú að við teljum að það skili meiru fyrir þjóðarbúið. Auðvitað verða bæði fólk og fyrirtæki að greiða skatta og skyldur en við þurfum alltaf, og sérstaklega núna, að hugsa: Hvernig tryggjum við verðmætasköpun á Íslandi? Við erum að horfa — ekki er ég eini maðurinn sem fylgist með fjölmiðlum hér inni — á alvarlega stöðu sem er í gangi í alþjóðamálunum. Það hefur áhrif á okkur, það hefur áhrif á útflutningsgreinarnar. Við vorum með fjármálaráð í fjárlaganefnd í morgun sem var að benda á að fjármálaáætlunin væri svo bjartsýn. Það þarf ekkert mikið til þess að við fáum högg á útflutningsgreinarnar okkar, ferðaþjónustu, sjávarútveg, og ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að ég hélt að hæstv. ríkisstjórn væri að nálgast málið með þeim hætti núna.