156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:00]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem mér finnst skipta máli hér, og það ber að taka það til skoðunar, er að þegar verið er að tala um tolla sem þessi atvinnugrein lendir hugsanlega í þá kann það að gera það að verkum að tekjur fyrirtækjanna lækka og það hefur þá bara bein áhrif þegar verið er að reikna út veiðigjaldið sem þarf að greiða. Mig langar líka til að halda því til haga að veiðigjöld eru ekki skattar. Skattar eru ekki frádráttarbærir frá hagnaði. Þeir eru lagðir á hagnaðinn í lokin. Veiðigjöldin eru til þess að greiða sanngjarnt gjald fyrir aðgang að sameign þjóðarinnar. En það sem mig langaði hins vegar til að spyrja hv. þingmann um er þetta: Hann nefndi hér, og það hafa fleiri nefnt það, að það væri skringilegt að miða við norskt verð á uppsjávarfiski. En nú er það þannig að heimsmarkaðsverð er oft notað við alls konar útreikninga. Þegar við erum t.d. að selja orku er miðað við heimsmarkaðsverð á áli og (Forseti hringir.) olíuverð í Noregi er miðað við heimsmarkaðsverð á olíu. Af hverju er það svona óskaplega slæmt fyrir okkur að miða við norskt verð á uppsjávarfiski, markaðsverð?