156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:01]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get ekki spurt hv. þingmann en ég þakka honum fyrir spurninguna, en ég ætla að spyrja og svara. Ég spyr hvort hv. þingmaður viti um einhvern stjórnmálamann sem hefur komið og sagt: Ég er hér með hugmynd um hækkaðan skatt eða nýjan skatt og hann er ósanngjarn. Það hefur aldrei gerst. Stjórnmálamaður hefur aldrei komið hér og sagt: Heyrðu, hér er skattahækkun, hún er ósanngjörn, aldrei. Stjórnmálamenn koma alltaf og segja að þetta sé sanngjarnt, svo þarf bara fólk og fyrirtæki að borga. Því finnst það kannski ekkert sanngjarnt að þurfa að borga. Þetta er skattumhverfi íslenskra fyrirtækja sem eru í samkeppni við erlend fyrirtæki. Tollastríðið hefur m.a. þau áhrif að það eru mjög háir tollar á Bandaríkjamarkaði á Kína, og það er líklegt að svo verði áfram. Það þýðir að norski fiskurinn sem fer mjög mikið til Kína og er unninn þar og fer til Bandaríkjanna — það er búið. Menn fá hann núna á fullu inn í Evrópu í samkeppni við íslenska fiskinn þar sem engin samkeppni hefur verið við Norðmenn vegna þess að þeir hafa farið þessa leið inn í Bandaríkin. Þetta er flókið umhverfi, það veit enginn hvernig það þróast. Það er útilokað annað en að kaupmáttur þeirra þjóða sem við erum að versla við lækki. Það er eiginlega hægt að garantera að það gerist. Og þegar þú ert að hugsa um skattumhverfi — það er ekkert fullkomið, fiskveiðistjórnarkerfið er ekki fullkomið, svo sannarlega er skattumhverfið ekki fullkomið. En við verðum að hugsa útflutningsgreinarnar okkar þannig að þær skapi sem mest verðmæti fyrir íslenska þjóð og þær gera það ekki nema að vera samkeppnishæfar á erlendum mörkuðum. Það er ekkert elsku mamma úti í heimi fyrir íslenska aðila. Fyrirtækin okkar eru að keppa við fyrirtæki sem eru ríkisrekin, og alls ekki ólíklegt í þessari stöðu að aukið verði í þann ríkisstuðning, alls ekki ólíklegt. Við vitum það ekki.

En ef þú ert að spyrja um það hvernig við eigum að nálgast þetta (Forseti hringir.) og heimsmarkaðsverð á olíu — jú, við erum bara að tala um íslenskt skattumhverfi og ef við ætlum að setja eitthvað annað umhverfi, t.d. að spegla norska umhverfið á Íslandi og nota það sem einhvers konar skattstofn, eigum við þá ekki að byrja á því að skoða hvernig þetta norska kerfi er, kynna það í það minnsta fyrir þingi og þjóð?