156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:09]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir hennar ræðu þótt ég hafi svo langt í frá verið sammála inntaki hennar. Ég held að þetta sé sú ræða sem flutt hefur verið hér í dag sem er með flest rangindin og slagorðin sem höfð hafa verið uppi: almannahagsmunir, sérhagsmunir, ryksugukvótinn og ég veit ekki hvað og hvað. Það er kannski ágætt að benda hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur á það að þegar kvótanum var upphaflega úthlutað fóru 56% af kvótanum til sveitarfélaganna. Gott dæmi er sveitarfélagið Raufarhöfn, þar sem hreinn meiri hluti Alþýðubandalagsins seldi, í nóvember 1999, Bæjarútgerðina Jökul hf. og togarann Rauða Gnúp til Útgerðarfélags Akureyrar. Og hvað gerði hreinn meiri hluti Alþýðubandalagsins á Raufarhöfn? Þau keyptu bréf í deCODE. Það voru ekki einhverjir vondir útgerðarmenn.

En mig langar að spyrja hv. þingmann: Nú hafa komið 26 umsagnir frá sveitarfélögum sem allar eru neikvæðar; frá Hornafirði, Vestmannaeyjabæ, Grindavík, Suðurnesjabæ, Ölfus, bara úr kjördæmi hv. þingmanns. Hvað segir hún um þær áhyggjur sem þar er lýst? Það er reyndar ekki þjóðin að hennar mati. En hvað finnst hv. þingmanni um þær áhyggjur sem er lýst í umsögnum sveitarfélaga í hennar kjördæmi?