156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:11]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir andsvarið. Ég skil þær áhyggjur mjög vel. En við skulum bara rifja það upp að árið 2012, þegar veiðigjöldin voru til umræðu, þá voru nú aldeilis harmakveinin og hryllingsspárnar um hvernig færi fyrir útgerðinni og byggðarlögum landsins. Það reyndist ekki á rökum reist. Tölurnar sem ég talaði um hér áðan sýna það svart á hvítu að það er borð fyrir báru. Stóru útgerðirnar eru að fara að bera hitann og þungann af þessu og þær geta vel borgað fyrir þetta. Ég held að sveitarfélögin komi til með að sjá að áhyggjur þeirra eru ástæðulausar.