veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það er ágætt að rifja þessa sögu upp varðandi veiðigjöldin árið 2012 þegar vinstri stjórnin sem þá var ætlaði líka að hækka veiðigjöldin alveg eins og sú vinstri stjórn sem nú er við völd. Þá ætlaði vinstri stjórnin að fara með veiðigjöldin í 25 eða 30 milljarða. Hún gerði það ekki. Hún gerði það ekki út af þeirri andstöðu sem kom ekki bara héðan úr þinginu heldur alls staðar að úr samfélaginu. Og það er það sem ég er að tala um. Það eru 26 sveitarfélög sem eru búin að mótmæla þessu og tala um neikvæð áhrif, og mörg sveitarfélög í kjördæmi hv. þm. Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, og ég held að við hljótum að þurfa að horfa til þess. En hv. þingmenn stjórnarinnar töluðu um að þeir ætluðu að fara hér að malbika vegi, byggja nýja vegi, grafa jarðgöng og ég veit ekki hvað og hvað á að gera fyrir þessa peninga. En nú er það þannig að það hefur ekkert breyst að hæstv. innviðaráðherra hefur enn bara 5,6 milljarða til umráða og kvartaði yfir því hér í ræðustól á dögunum að það hefði ekkert breyst. Sér hv. þingmaður fyrir sér að afraksturinn af því, ef hæstv. ríkisstjórn tekst að hækka þessi gjöld sem þessu nemur, sem þau ætla að hækka, eigi allur að fara í vegagerð? Það er mikið talað um vegagerð, það er nefnilega búið að eyða þessum peningum annars staðar en það er svo sem ekkert nýtt að sömu krónunni sé eitt af vinstri stjórninni tvisvar og þrisvar. En eiga þessir peningar að fara í vegagerð? Og hvar á sú vegagerð að fara fram? Af því að það vantar 290 milljarða upp í innviðauppbyggingu í samgöngumannvirkjum.