156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:14]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Já, það er talað um að þetta fari í innviði, í vegakerfið. Landsnet — við vitum hver staðan er þar, það þarf gríðarlega uppbyggingu í flutningskerfi til þess að koma í veg fyrir að hér slái út, eins og hefur gerst með víðtækum afleiðingum síðustu ár. En vegakerfið, við vitum alveg hvernig er komið fyrir því. Það dugir ekkert elsku mamma þar. Það þarf stórátak sem ég veit að þú gerir þér líka grein fyrir og sá peningur verður ekkert tekinn upp úr götunni, hann þarf að koma einhvers staðar frá. Og það er búið að tala um það hátt og skýrt að þessi peningur verði notaður til að byggja upp innviði í landinu, þar á meðal vegakerfið.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að notast við þriðju persónu og ávarpa ávallt forseta.)