veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir hennar ræðu, hún var sköruglega flutt. Mig langar, áður en ég ber upp spurningu, til að nefna þetta: Sé það rétt hjá hv. þm. Jens Garðari Helgasyni að 56% kvótans hafi farið til bæjarútgerða þegar úthlutað var í fyrsta skiptið, þá var það einfaldlega vegna þess að honum var úthlutað út frá veiðireynslu. Ef það voru bæjarútgerðir sem höfðu veiðireynsluna þá fengu þær náttúrlega kvótann. Hins vegar kemur það mér ekki sérstaklega á óvart að það hafi verið nokkrir Alþýðubandalagsmenn sem hafi selt kvóta Raufarhafnar, illu heilli. En hins vegar hefur útgerðarfélag Akureyrar væntanlega hagnast á því.
Fyrir nokkrum dögum flutti hv. þm. Guðbrandur Einarsson ræðu hér í þinginu þar sem hann fór yfir það hvernig kvóti hefði farið frá Keflavík og endað í Reykjavík í gegnum Sandgerði og Akranes. Spurningin er þessi: Fram til þessa hafa fiskvinnslur verið að loka og kvóti að færast til án þess að veiðigjöld hafi verið hækkuð. Mig langaði að spyrja hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur hvort hún sjái fyrir sér að það sé eingöngu um það að ræða að það sé hækkun veiðigjalds að kenna ef einhverjum fiskvinnslum verður lokað á landinu, hvort einhverjar aðrar ástæður gætu verið að baki.