156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:17]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir andsvarið. Ég held í sjálfu sér að hækkun veiðigjaldsins komi ekki til með að vera ástæða þess ef útgerðir fara að loka á næstunni. Ég ætla rétt að vona að það verði ekki viðbragð útgerðarinnar að fara að loka til að sýna fram á það að þetta hafi víst orðið eins og þeir sögðu að þetta myndi verða. Ég óttast að það gæti gerst, en ég vona innilega að svo verði ekki. Þessi samþjöppun sem þú nefnir hefur átt sér stað í áranna rás og kannski viðbúið að hún haldi eitthvað áfram með aukinni tæknivæðingu og slíku. En vonandi fáum við bara öflugar útgerðir áfram í sem flestum byggðarlögum.