156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:19]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða segir, með leyfi forseta: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar.“ Í 1. gr. laga um veiðigjald segir m.a. að það eigi, með leyfi forseta, „að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar“. Það er því nokkuð skýrt samkvæmt lögum að íslensk þjóð er eigandi fiskveiðiauðlindarinnar og hún á að fá hlutdeild í afkomu þeirra sem fá að nýta hana. Það er mikilvægt að hafa í huga að veiðigjöld eru ekki refsing á útgerðarfyrirtæki. Veiðigjöld eru réttlát greiðsla fyrir afnot af auðlind sem tilheyrir þjóðinni allri. Veiðigjöldin eru hugsuð til að skapa sátt meðal almennings, sátt um kvótakerfið sem í eðli sínu takmarkar aðgang landsmanna að sameiginlegri auðlind okkar allra. Við vitum öll að það felast mikil verðmæti í veiðiheimildum íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja enda hafa þær skapað gríðarleg verðmæti fyrir fyrirtækin og eigendur þeirra. Veiðigjöldin hafa það hlutverk að tryggja þjóðinni beina og sýnilega hlutdeild í afkomunni og skapa eins konar, með leyfi forseta, „win-win“ stöðu þar sem þjóðin og fyrirtækin njóta góðs af arðbærum veiðum við Íslandsstrendur.

Núgildandi lög um veiðigjald eru gölluð að því leyti að útgerðir sem eiga alla virðiskeðjuna í starfsemi sinni geta sjálfar ákveðið á hvaða verði þær selja vinnslum í eigin eigu fiskinn sem veiddur er. Veiðigjaldið leggst nefnilega einungis á aflann og skiptin eru þannig að 33% af hagnaði hans fer í veiðigjald til þjóðarinnar en útgerðin heldur eftir 67%. Það er ekki eðlilegt fyrirkomulag að fyrirtæki geti ákveðið einhliða hvað það greiðir fyrir afnot af þjóðarauðlind.

Ein skýrasta birtingarmynd þess hversu sérkennilegt fyrirkomulagið er er sú að tekjur af veiðigjaldi hafa oft ekki staðið undir kostnaði við þá þjónustu sem ríkið veitir sjávarútvegi. Sá kostnaður, sem er m.a. vegna rannsókna, eftirlits, rekstur Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, var 11 milljarðar kr. árið 2023 á meðan veiðigjaldið var um 10 milljarða kr. Ríkið borgaði því með þjónustunni við útgerðina á einu besta rekstrarári hennar í sögunni.

Leiðréttingin sem hér er verið að innleiða felur einfaldlega í sér að veiðigjaldið verði reiknað af raunverulegu verðmæti aflans en ekki því verði sem fyrirtækin ákveða sjálf í innri viðskiptum innan eigin samstæðu. Leiðréttingin felur ekki í sér að fyrirtæki þurfi að setja aflann á markað eins og gert er í Noregi og geta þau áfram veitt og unnið fiskinn innan sömu samstæðu. Leiðréttingin felur einfaldlega í sér að markmið laganna um veiðigjald, um að þjóðin fái 33% hlutdeild í hagnaði af markaðsverðmæti aflans, séu uppfyllt. Svo einfalt er málið. Til að finna það markaðsverð er stuðst við 12 mánaða meðaltal á íslenskum fiskmarkaði fyrir þorsk og ýsu en verð á markaði í Noregi þegar kemur að síld, kolmunna og makríl. Hér er einfaldlega verið að finna bestu mögulegu leiðina til að finna viðmiðunarverð sem hægt er að finna fyrir algerlega sambærilega vöru.

Virðulegi forseti. Það þarf ekki að dvelja lengi í heitum pottum landsins eða við kaffivélarnar á vinnustöðum til að komast að þeirri niðurstöðu að þjóðin telur sig ekki vera að fá réttláta hlutdeild sem henni ber. Sú afstaða kemur líka skýrt fram í könnunum sem gerðar hafa verið. Í ágúst 2021 kom til að mynda fram í könnun að 77% landsmanna væru fylgjandi því að markaðsgjald væri greitt fyrir afnot af fiskimiðum þjóðarinnar. Önnur könnun gerð á sama tíma sýndi að tveir af hverjum þremur landsmönnum væru óánægðir með núverandi útfærslu á kerfinu og að 64% töldu hana einfaldlega ógna lýðræðinu. Í aðdraganda síðustu kosninga var svo gerð könnun sem sýndi að næstum sex af hverjum tíu landsmönnum töldu að hlutdeild almennings í arðinum af nýtingunni á auðlindinni væri ranglát. Á síðustu vikum, eftir að áform ríkisstjórnarinnar um að leiðrétta veiðigjöld, voru gerð opinber hafa fleiri kannanir verið birtar. Ein sýndi að sjö af hverjum tíu landsmönnum segist þekkja frumvarpið vel eða í meðallagi og 94% þeirra eru þeirrar skoðunar að útgerðir landsins geti borgað meira í veiðigjöld en þær gera í dag. Önnur könnun sýndi að rúmlega 80% þjóðarinnar styðja að útgerðir greiði gjald sem tekur mið af raunverulegu verðmæti afla fyrir afnot af fiskimiðum. Í henni kemur líka fram að þessi skoðun er ekki háð búsetu og að kjósendur allra stjórnmálaflokka eru á þessari skoðun.

Þessi þjóðarvilji hefur líka komið skýrt fram í kosningum. Þeir þrír flokkar sem nú mynda ríkisstjórn fengu 36 af 63 þingmönnum í síðustu kosningum. Þeir bættu allir við sig verulegu fylgi og þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa haft það á stefnuskrá sinni að tryggja þjóðinni sanngjarna hlutdeild í arðseminni sem fylgir nýtingu á fiskveiðiauðlind þjóðarinnar. Ríkisstjórnin setti það markmið svo í stjórnarsáttmála sinn og samkvæmt síðustu mælingu styðja tveir af hverjum þremur landsmönnum ríkisstjórnina í verkum sínum.

Virðulegi forseti. Frumvarpið sem hér liggur fyrir er vel undirbúið og vel undirbyggt. Það er lagt fram af stjórn flokka sem allir boðuðu breytingar á þessari gjaldtöku fyrir kosningar, hlutu yfirgnæfandi stuðning kjósenda til að hrinda þeim breytingum í framkvæmd, boðuðu það í stjórnarsáttmála og ætla nú að standa við stóru orðin. Framkvæmdin er þannig að hún nýtur yfirgnæfandi stuðnings þjóðarinnar sem skilur um hvað málið snýst, kannanir sýna það svart á hvítu, og það er mikilvægt að samstaða er meðal þjóðarinnar í þessari vegferð. Við finnum það þegar við ferðumst um kjördæmin. Við finnum það þegar við ræðum við kjósendur hvert sem við förum.

Það er löngu tímabært að finna sáttaflöt á því samfélagsmeini sem deilur um skiptingu á arðinum sem hlýst af nýtingu þjóðarauðlindar eru. Það er ábyrgðarhluti fyrir stjórnmálamenn sem starfa í þágu almennings að takast á við þá áskorun. Ég skora á fulltrúa allra flokka á Alþingi að koma með ríkisstjórninni í þá vegferð að skapa aukna sátt um sjávarútveginn á Íslandi. Með þessari leiðréttingu verður til réttlátt veiðigjald sem byggir á skynsemi, nýtur stuðnings þjóðarinnar og tryggir að arðurinn af sameiginlegri auðlind renni með sanngjörnum hætti til samfélagsins í heild.