156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:27]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir alveg fyrirtaksræðu. Ég er í grundvallaratriðum algerlega ósammála honum, en ræðan var góð. Það er nú gott að hv. þingmaður er með niðurstöður úr síðustu skoðanakönnunum á hreinu og ég óska honum til hamingju með þann árangur sem flokkur hans er að fá í þeim könnunum og hvet hann til þess að njóta meðan það varir. En mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann: Mér finnst það í raun og veru vera grundvallaratriði í þessu, og það hefur komið fram í ræðum í dag, hvað er rétt mynd af aflaverðmæti. Hvar fáum við þá tölu? Hvað er sanngjarnt og hvað er raunhæft? Og í því ágæta frumvarpi sem við erum að ræða hér í dag, og ég þarf ekkert að fara yfir það fyrir hv. þingmenn, er talað um norsku leiðina varðandi uppsjávartegundirnar. En með ýsuna og þorskinn þá er þetta, eins og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni, 12 mánaða tímabil á fiskmörkuðum. Hér hafa t.d. komið fram hugmyndir frá stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönnum um að setja allan fisk á markað. Mig langar kannski að fá skoðun hv. þingmanns á þessu: Ef við myndum setja töluvert meira af fiski inn á markaðinn, hvaða afleiðingar myndi það hafa fyrir verð á mörkuðum og hvaða afleiðingar myndi það hafa fyrir verðmætið sem við erum að tala um, aflagjaldið?