veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir andsvarið og viðurkenni að þetta var líklega sú ræða sem ég var hvað spenntastur fyrir í dag og það var að heyra hvaða afstöðu Framsóknarflokkurinn myndi hafa í þessu máli. Ég verð að viðurkenna að það kemur mér á óvart og veldur mér vonbrigðum að hann sé ósammála okkur í öllu því sem kemur að þessu frumvarpi. Ég viðurkenni að ég batt vonir við að Framsóknarflokkurinn stæði með ríkisstjórninni í þessu máli en þykir leitt að svo sé ekki.
Varðandi spurninguna hvaða áhrif það hefði á verðmæti aflans að setja hann allan á markað vil ég byrja á að svara því að það er ekki það sem er verið að ræða um í frumvarpinu. Hér er einungis verið að tala um það að við útreikninga á veiðigjaldi, sem er alveg skýrt kveðið á um í lögum, þ.e. að 33% af hagnaði aflans eigi að renna til þjóðarinnar, séu þau 33% reiknuð af réttum stofni þannig að rétt verðmæti fáist fyrir aflann. Um það snýst málið. Það er enginn að tala um að kollvarpa neinu kerfi. Það er enginn að segja að allur afli fari á markað, það er bara þvæla og við eigum ekki að eyða tíma Alþingis í að vera að ræða það hér enda ekki á dagskrá þessa þingfundar.