156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:36]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir andsvarið og þær spurningar sem hann ber hér upp. Ég hlustaði á aðra ræðu hjá hv. þingmanni áðan þar sem hann kvartaði sáran yfir því að stjórnarliðar gerðu ekkert annað en að tala um verk Sjálfstæðisflokksins en kallar nú eftir því að ég verði einhvers konar álitsgjafi um fyrri ákvarðanir ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem hafa margar reynst þjóðinni gríðarlega illa. Það er rétt. Smáráðlegging sem ég vil gefa hv. þingmanni sem er kominn í, og hefur náttúrlega lengi verið, einhvers konar áhrifastöðu innan Sjálfstæðisflokksins. Það er alltaf mikið heillaskref þegar stjórnmálaflokkar standa þétt með þjóðinni. Þegar stjórnmálaflokkar hlusta á þjóðarviljann, vilja kjósenda, vanda sig við lagasetningu, eru ábyrgir í henni en engu að síður fjarlægjast ekki þjóðina. Það er það sem ég óttast fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins að sé að gerast í þessu máli, að þau séu stödd í ákveðnum bergmálshelli þar sem þau sjá þessu frumvarpi allt til foráttu og hér muni heilu byggðarlögin hreinlega leggjast í eyði ef þjóðin fær réttlátt gjald fyrir nýtingu á þjóðarauðlindinni okkar. Ég vil frekar hvetja hv. þingmann til að ná smájarðtengingu við þjóðina, eiga í samtali við fólk úti um allt land og hlusta. Þá kemur alveg skýrt fram hvernig byggðir víðs vegar hafa verið illa leiknar af núverandi kvótakerfi, hvernig byggðir landsins hafa verið illa leiknar af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þegar kemur að innviðaskuld, hvort sem við erum að tala um vegamál, heilbrigðismál, hafnarmál og fleira.

Þetta mál er jákvætt mál. Þetta mál hefur stuðning þjóðarinnar, ríkisstjórnarflokkanna og mun skapa ríkissjóði tekjur af nýtingu þessarar auðlindar sem verða nýttar til að byggja upp innviði landsins og það er heldur betur þörf á því eftir stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.