veiðigjald.
Virðulegi forseti. Var þetta ekki helst til hrokafullt? Ég spurði þriggja spurninga og hér kemur einhver hugleiðing sem á betur heima á sellufundi Samfylkingarinnar. Úr því að hv. þingmaður vill ekki svara þessum einföldu spurningum vill hv. þingmaður þá segja okkur frá því af hverju hann treystir sér ekki til að svara einföldum spurningum. Með fullri virðingu, þessi vandlæting og yfirhalning hérna, ég bara frábið mér hana. Við getum alveg farið yfir Samfylkinguna og hennar verk, það er ekki vandamálið. Og hvað þá í samvinnu við þennan Viðreisnarflokk, það er ekkert mál. Þetta gengur út á það að maður fer í andsvar. Maður þarf að spyrja hv. þingmenn en það er augljóst að hv. þingmaður er ekki tilbúinn að svara þessum spurningum sem eru einfaldar og ætti ekki að vera flókið að svara. Spurning mín er núna: Af hverju treystir hv. þingmaður sér ekki til að svara þessum spurningum?