veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir seinna andsvar. Þetta hlýtur að vera einhvers konar Íslandsmet í „margur heldur mig sig“ varðandi það að koma upp með hroka og tala niður til annarra þingmanna. En gott og vel. Ég taldi mig hafa svarað spurningum þingmannsins ágætlega. Ég ætla ekki að gerast einhver svona skattalagasérfræðingur varðandi þriðju spurninguna sem kannski hangir enn þá uppi, ég ætla að leyfa öðrum skilgreiningar á sköttum og gjöldum og sumir hafa rætt það hér í dag. (Gripið fram í.) Eins og ég segi þá ætla ég ekki að lýsa einhverri afstöðu í því máli enda finnst mér það ekki vera aðalatriði máls. Ég hefði gjarnan viljað fá spurningu varðandi inntak frumvarpsins og ég hefði líka viljað heyra það í ræðu þingmannsins hér áður hver hans skoðun er á kerfinu, því eins og fram hefur komið hér í ræðum áður var ríkisstjórn sem hv. þingmaður sat í með þær hugmyndir að hækka veiðigjaldið (Gripið fram í.) upp í 45% og fella það niður að það væri frádráttarbært frá gjöldum.
(Forseti (ÞSv): Forseti biður um að þingmenn fái frið til að tala úr ræðustóli Alþingis.)