156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:41]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir hans ræðu hér áðan og segi nú eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson að ég var henni innilega ósammála og á tímabili hélt ég að ég væri frekar á aðalfundi Gallup en í ræðum um veiðigjöld. En það er eitt: Hér er alltaf verið að fara með sömu frasana og nú skulum við fara með rétt mál. Ég vil skora á hv. þingmann, og þess vegna kom ég bara upp í eitt andsvar af því að ég vil bara leiðrétta ákveðinn hlut. Það er nefnilega til hlutur sem heitir Verðlagsstofa skiptaverðs en hér er komið upp í pontu og sagt að það sé bara verið að koma í veg fyrir að menn verðleggi aflann eins og þeim sýnist. Ég trúi ekki að hv. þingmaður viti ekki betur. Það er ekki þannig að þú verðleggir aflann eins og þér sýnist. Á heimasíðu Verðlagsstofu skiptaverðs, með leyfi forseta, stendur:

„Hlutverk stofnunarinnar er að fylgjast með fiskverði og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna, eins og nánar er tilgreint í lögum nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.“

Það er ótrúlegt að það sé verið að koma hér upp og halda því fram að hér sé bara verið að verðleggja aflann eins og mönnum sýnist. Því er spurning mín til hv. þingmanns: Get ég ekki treyst því í umræðunum sem fram undan eru, af því að ég treysti því að hv. þingmaður verði liðtækur í sínum spurningum og andsvörum, að hann fari rétt með framvegis og haldi þessu ekki fram?